:: fimmtudagur, desember 02, 2004 ::
vinir og vandamenn, börn, barnabörn og barnabarnabörn...ég hef hafið nýtt blogg www.hildua.blogspot.com aaaaaand take a look!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, desember 02, 2004
:: mánudagur, apríl 05, 2004 ::
Gömul orð Steins Steinars:
,,Drekkum í kveld,
iðrumst á morgun."
...er hér með liðið lífsmottó, gone, dead, good bye!
Þrátt fyrir að það hefur tekið mig hátt í fimm ár að komast að þessu þá held ég að orð hans innihaldi ekkert nema sjálfblekkingu og veraldarflótta...nei nú liggur leið mín í aðra átt, nýir tímar í nánd og ferðin að disco ljósinu runnið sitt skeið...yes, i need another light!
...og afhverju stóð þetta ekki aftan á vínflöskunni....???!:
) 1)Þú átt á hættu að dansa eins og fífl ef þú drekkur úr þessari flösku.
2) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú segir sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur, þar til vini þína langar
mest til að berja þig.
3) Neysla áfengis getur orðið til þess að þú "þegir þlutina þvona".
4) Neysla áfengis getur komið þeirri ranghugmynd inn hjá þér að fyrrverandi elskhugar þrái að heyra í þér klukkan
fjögur að morgni.
5) Neysla áfengis getur orðið þess valdandi að þú hafir ekki hugmynd um hvar nærbuxurnar þínar eru niðurkomnar.
6) Neysla áfengis getur orðið til þess að þegar þú opnar augun morguninn eftir sjáirðu eitthvað sem vekur þér ótta
(eitthvað, sem þú getur ómögulega munað hvað heitir).
7) Neysla áfengis getur valdið því að þú teljir þig miklu laglegri, og gáfaðri en þú ert, sem getur leitt til óteljandi vandræða
:: hildur skrifaði | mánudagur, apríl 05, 2004
:: fimmtudagur, apríl 01, 2004 ::
Ekki nóg með það lítill fugl gaspraði því uppí eyrað á mér að einhver teldi mig léttgeggjaða heldur fékk staðfestingu á því hérna rétt áðan! Þenk jú veri næs...
Ég hafði greinilega smellt einu kerti, óvart, inní ískápinn eftir hraðinnkaupin sem ég gerði rétt áður en ég skellti mér í vinnuna. Þegar ég kem svo loksins heim áðan spyr Lovísa mig hvað kerti sé eiginlega að þvælast fyrir matvörunum! Auðvitað hafði ég ekki græna glóru hvers vegna en það versta er að Lovísa ákvað að leyfa því að sitja í ískápnum þar til ég kæmi heim ef ég skyldi hafa sett það þar af ásettu ráði... og henni fannst ekkert athugavert við það!!!:)
..Hélt að þeta væri ,,partur af einhverju helvítis listrænu kjaftæði"...eins og hún orðaði það svo skemmtilega...æ lov jú men;)
SPRED ÐE NJÚS!!!!!!!!
MA-partý á PRAVDA laugardaginn 3.apríl klukkan 23:00..allir að mæta!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, apríl 01, 2004
:: þriðjudagur, mars 30, 2004 ::
Veðrið hefur náð yfirráðum og sest að stjórnborði geðheilsu minnar!Nó gút nó gút!
Í fyrramálið ætla ég taka í hnakkadrambið á mér og setja saman gleðidagskrá, þýðir ekkert minna.
Það er löngu vitað mál að veðurfræðingar hér á landi geta hætt að tala undir rós og komið sér beint að efninu:
,,Skapið næstu daga gengur á með vonskuköstum sunnanvið og volæði. Faxaflói, faxaflóamið þunglyndi með átköstum og geðhvörfum. Fólk léttara á annesjum! Uppúr hádegi á morgun má búast við góðu skaði víða um land með brandara á köflum en þyngir til muna þegar líður á kvöldið. Spáin næstu daga stefnir í stórsteik, vidjó gláp og eyrðaleysi. Helgin húmorslaus."
...Thank you so much very many!!!
Fór á stórverk Mel Gibson um daginn, Pýslasaga Krists. Ég held ég verði að segja að þessir Kanar skelli sér seint í að filma eitthvað faganaðarerindi. Ráða hreinlega ekki við slíkan pakka! Maður þekkir þessa sögu og veit af henni, því hefði ég verið til í að sjá einhverja stórmynd um eitthvað gleðilegt. Mér var skapi næst að kalla í prest í hléi til að fá syndaaflausn, skvettu af heilögu vatni eða eitthvað, what ever...svo eru þessir messuvinir svo séðir að skófla í mann kirkuauglýsingum og messudóti á leiðinni út!...sátu alveg fyrir manni:)
:: hildur skrifaði | þriðjudagur, mars 30, 2004
:: föstudagur, mars 26, 2004 ::
Gleði gleði gleði....
Stuttur föstudagur og hressileg fríhelgi. Hækkið í hátölurunum því ég færi ykkur viðbótargleði með ÞESSU!
:: hildur skrifaði | föstudagur, mars 26, 2004
:: þriðjudagur, mars 23, 2004 ::
SHALOM!
Nú get ég bætt nýrri íþrótt í prufusafnið mitt því í gær gerðist ég lítil taekwondokona. Sú íþrótt virðist vera hressileg blanda af aga, teygjum og spörkum. Feikna áhugaverð. Eftir hressilega reynslugöngu í styrðum íþróttum eins og skíði og knattspyrnu hefur liðleiki ekki verið mér kunnugur en nú var tími til þess að láta ljós hans skína! Það er nú kannski ekki frásögu færandi nema að í gær, á því andartaki sem ég kú-rembdist við að ná einhverju smá gripi á stóru tánnum í einni teygjunni, að ég fór að spekulera og mundi eftir einu kommenti sem ég varð alveg handsammála.
,,If God wanted me to touch my toes, he would have put them on my knees."...en það var um seinan, I was there!Ég hafði náð tánnum!
En um leið og ég mundi eftir þessari athugasemd fóru fleiri slíkar að rifjast upp og fleirri til sem koma hér á eftir:
How does the guy who drives the snowplow get to work in the mornings?
If you're in a vehicle going the speed of light, what happens when you turn on the headlights?
Why is it that when you're driving and looking for an address, you turn down the volume on the radio?
Why is there an expiration date on SOUR cream?
Is it a law of nature that women have to sneeze as soon as they apply their mascara?
When it rains, why don't sheep shrink?
The trouble with doing nothing is that you never know when you are finished.
If a stealth bomber crashes in a forest, does it make a sound?
When sign makers go on strike, is anything written on their signs?
If you got into a taxi and he started driving backwards, would the taxi driver end up owing you money?
What would a chair look like if your knees bent the other way.
What happens to the holes when all the cheese has been eaten?
Why do ballet dancers always dance on their toes? Wouldn't it be easier to just hire taller dancers?
Employment application blanks always ask who is to be notified in case of an emergency. Wouldnt a good response be to write . . . A Good Doctor!
Why do they have the back pain medicine on the bottom shelf at the pharmacy?
If you were on a plane going the speed of sound and walked from the back of the plane to the front, would you be walking faster than the speed of sound?
Why do British people never sound British when they sing?
Why do they put "for indoor or outdoor use only" on christmas lights?
Why can't women put on mascara with their mouth closed?
Þetta hefur vonandi kitlað sellurnar aðeins...annars er meira hér!
:: hildur skrifaði | þriðjudagur, mars 23, 2004
:: föstudagur, mars 19, 2004 ::
Morning has brooooken...Já, það var óumflýanleg staðreynd þennan morguninn að það væri í mínum höndum að brjóta daginn þegar ég skreið manna fyrst úr minni holu 5:eitthvað. Laaaangur dagur en hann mun aðlokum líða! Er búin að næla mér í nokkra miða á konukvöld á Sólon sem ætlar að lauma okkur inn í nóttina með einhverju spennandi og skemmtilegu....
óóó well, rakst á einn fyndin, tjahh ég skellihló, fer ekki fram á meira;)
Two Tourists
Two tourists were driving through Wisconsin. As they were approaching Oconomowoc, they started arguing about the pronunciation of the town's name. They argued back and forth until they stopped for lunch. As they stood at the counter, one tourist asked the blonde employee. "Before we order, could you please settle an argument for us? Would you please pronounce where we are... very slowly? The blonde girl leaned over the counter and said, Burrrrrr, gerrrrrr, Kiiiing."
:: hildur skrifaði | föstudagur, mars 19, 2004
:: þriðjudagur, mars 02, 2004 ::
,,Þetta er bAaaaara spurning um mataræðið"
....impraði ég 70 þúsund sinnum á við aumingja konuna í baðhúsinu í dag sem gleypti við öllu sem ég sagði. ,,Maður á bara að byrja strax, ekkert á morgun/mánudag eða um mánaðarmótin". Óvitandi að ég ætti eftir að mæta henni fjórum tímum síðar í 10-11 með fangið fullt af djúpsteiktu jalapenó og pizzu, gasprandi í símann við pabba að nú skuli sko étið því á morgun ætli ég í átak!!!! Þaðan af næst brosti ég bara bjánalega, lagði sveittan og feitan matinn á búðarborðið og sagðist ekkert vera ein af þeim sem tækju vinnuna með sér heim! Svo mikið fór um þá sannfæringu:)
Fékk mjög niðurbrjótandi tölvupóst í dag að ég gat vart varist tárum. Tilkynnig um það að glæsileg tillaga mín að nafni náttúrufræðihús Íslands hafi verið hafnað, skotin niður, gleymd og glötuð til eilífðarnóns...Ég get bara ekki á nokkrun hátt séð hvað fær fólk til að hlakka til að fara í tíma í ,,Öskju"....hljómar eins og léleg nafn á leiknum ,,eitur í flösku". Ég stakk uppá Þjóðgarður eða Lystigarður en í biturð minni skelli ég hér með ,,Kirkjugarður" á þetta ágæta hús! and there we go...
:: hildur skrifaði | þriðjudagur, mars 02, 2004
:: sunnudagur, febrúar 29, 2004 ::
,,Vertu gott blogg, bloggið mitt, í megabæta nafni...".
Það nær náttúrulega engri átt hvað maður er hress að blogga...
Ummmm, var að skríða inn úr frábærri helgi í Reykjadal. Alveg endurnærð á vissan hátt þrátt fyrir að allt annað sé steinslökkt, búið, off! En þangað er alltaf gott að koma, sveitasæla, góður andi og gamalt þegjandi smakomulag um þangað séu allir komnir í þeim eina tilgangi að éta á sig gat og skemmta sér. Þó varð mér ein staðreynd ljós! Do not let people in, hvorki í sundlaugar, þaðan af síst Reykjadal eða aðra sambærilega staði, sem er með meiri kunnáttu í örverufræðum og sýklum en augað nemur! Ég var orðin svo gufusoðin í eyrunum af öllu þessu ósýnilega-sýklatali að mér fannst ég sprengja þá eins og hrogn í hrúgu í hvert skipti sem ég smellti mér í pottinn, settist niður eða gekk um berfætt:)OOOjjjjjjjj!
:: hildur skrifaði | sunnudagur, febrúar 29, 2004
:: fimmtudagur, febrúar 26, 2004 ::
Hahahahaaaaaa...æjjjjjhhh, ja hérna!
Heyrði svo brillíant stöku í gærkvöldi, fáorð en ein-stök:)...eitthvað sem Lovísa greip á fyrirlestri um íslenska bragarhætti í kennó. Hún er á þessa leið:
1.apríl.
Marsbúinn
Lúmsk... ýmind hins fullkomna hagyrðings! Pottþéttur texti í Júróvisjon, innihaldið fyllir að minsta kosti kröfur dómnefndar býst ég við!
Hey kvinnur!
Hvernig hljómar kúlurass og six pack fyrir helgi!!...já eða svona næstum því:) Við erum að byrja með svona "tækjasals..a" hahahaaa...já þetta fannst mér fyndið! Það er að byrja svona"eitthvað ónefnt" þar sem eru 4-6 konur í hóp , stendur yfir í sex vikur, kostar 12900, hittið einkaþjálfara sjö sinnum með hópnum ykkar, fáið fullt af næringaupplýsingum, stuðningfundir, 50% afslátt af ljósakorti, fræðslubæklingur með æfingamyndum og eitthvað blöööhhh og jáhh ég er semsagt farin að auglýsa á blogginu mínu en það var ekki ætlunin....adios amigos!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, febrúar 26, 2004
:: þriðjudagur, febrúar 24, 2004 ::
Ég varð þunn í gær!
Algjörlega að tilefnislausu, ekki nema að föstudagsskatturinn hafi verið að skila sér...löngu eftir seinasta söludag! Ásta hélt uppá afmælið sitt í gær með bollubakstri og fínerí, enda ekki þekkt fyrir annað. Gestirnir, sem í meirihluta voru hallærisgegni og sóðabrækur, vorum alveg sérdeilis prýðilega ánægðar með gjafirnar. Þetta þýddi bara eitt, annað klámkvöld...stefnir reyndar bara í myndarlegan klámdag! Reðursafn, sveittur matur og afmælisgjöfin!
Ég tel samt óvænta ánægju dagsins vera skemmtilegt símtal í MA. Bjallaði á skrifstofuna til Höllu til að fá einkunnirnar mínar sendar. Bara eitt gott hæ, ég heiti Hildur og það kjaftaði í henni hver tuskan, afar ánægjulegt. OOohh hvað ég elska þennan skóla...maður hefur kannski bara verið of duglegur við að hringja sig inn veikan á sínum tíma?!:)
Rambaði inná hessilega mynd af rúmí!
Jæja pizza la Lovísa í ofninum...
:: hildur skrifaði | þriðjudagur, febrúar 24, 2004
:: fimmtudagur, febrúar 19, 2004 ::
Þetta er náttúrulega BARA snilld!!
Myndirnar komnar úr ýkt-ofur-mega-afmælis-karókí-parýinu hennar Kóngu þar sem margt rifjaðist upp. Mamma og Sveinbjörn virðast þar hafa skotið upp kollinum?!! Heitasti smellurinn,,Hvar er hvar er hvar er húfan mín...."tekið með mikilli innlifun, á meðan Heiður og Hobba virðast hafa séð um númer kvöldsins.
Bústaðarferðin varð mun sveittari enda bara kvinnur á ferð og ekki annars að vænta. Allar myndir þó ritskoðaðar;)
Ásta og Kónga FULL-orðnar;) Let´s twist again..., allir að segja ,,kjöööööt"...og af hverju eru allir enn i fötum!!??
Bebbs í stuði,
jójó siggalafóóóó...
....svo er restin af öllu saman bara hér!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Fyrir nákvæmlega ári, uppá sekúndu, var ég á mínu fyrsta íslenska þorrablóti. Þá dugði ekkert minna en að bruna alla leið til Chicago sittí til að láta það gerast. Það stóð þó alveg undir væntingum með þeim súrum veitingum sem þar átti að finna svo ekki sé minnst á aðkeypta dúndurbandið, hjónin úr Önundafirði sem léku fyrir dansi:)
Þó óska ég þess alltaf svo innilega að vera frá einhverjum týndum fiskistað í afdölum um þetta leyti þar sem alvöru þorrablótin finnast!...en mjög fegin þess á milli að svo sé ekki.
Helgin nálgast og Guð sé lof fyrir það. Lífsklukkan algjörlega löööngu orðin innstillt á það, búkurinn að sprynga af orku sem maður verður að twista úr sér. Ójá þetta þýðir bara aðeins eitt...gott búggí búggí um helgina!!!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, febrúar 19, 2004
:: mánudagur, febrúar 16, 2004 ::
nóóóóóg af bjór-TWISTER(örugg skemmtun)-heitar í potti(ójáááá)-heimabruggað hot and sweet(ojjjj)-túttuhlaup(grrrr...)-IDOL spil(sökkar biggtæm!)-grillaðir hamborgarar-brenndar kartöflu...og enn meiri bjór. Brilíant helgi! Stelpur saman í bústað er ekkert annað en glerhörð ávísun á villta gleði. Takk fyrir rokkið görls;)
Calimaria!
Ég þakka klár viðbrögð, bjargaðir mér frá þó nokkrum heilaskemmdum:)
:: hildur skrifaði | mánudagur, febrúar 16, 2004
:: miðvikudagur, febrúar 11, 2004 ::
,,Flaska með tappa kostar 110 krónur. Flaskan án tappans er 100 krónum dýrari en
tappinn, hvað kostar tappinn???"
...og afhverju er svarið ekki 10!!???? Mér er gjörsamlega lífsins ómögulegt að hugsa þetta!
Velgefnir og skýrir, vinsamlegast smellið útskýringu í gestabókina mína:)
:: hildur skrifaði | miðvikudagur, febrúar 11, 2004
:: mánudagur, febrúar 09, 2004 ::
...þetta líf er svo ófyrirséð, leyndardómsfullt og spennandi!Maður veit aldrei hvað er handan við hornið. Ekki til vandamál, bara fullt af viðfangsefnum.
Hmmm... ég heyrði fyrir löngu síðan að ef maður gengur niður Laugarveginn getur maður bókað það að aðeins 70% af fólkinu sem þú mætir er lifandi, hitt dautt!
Nú má ég ekki stynga svo miklu sem stórutánni inn Laugarveginn án þess að vilja helst pota í alla sem á vegi mínum verða til þess að ganga úr skugga um þessa vitleysu!. það var svo ekki fyrr en á laugardagsnóttina á leið minni heim af djamminu að ég komst að kjarna málsins. Það sem hefur haldið heilasellunum mínum við suðumark í gegnum árin er ekkert annað en steikt komment frá fullum Íslendingi! Á miðri nóttu er ekki prósentu meira en 70% íslendinga standandi í stúfana, hinir liggja dauðir, já svo djúp voru þau orð og þessar pælingar hér með jarðaðar!
Ég þarf aðeins að slaka á klippikortinu hjá sálarannsóknafélaginu:)
:: hildur skrifaði | mánudagur, febrúar 09, 2004
Hefurðu ekkert að gera, prófaðu þetta!
Googlism for: hildur
hildur is an old icelandic word for 'war
hildur is a science junkie
hildur is the “grand old lady” of our farm
hildur is totally dedicated to helping disabled veterans and their families in every way she can
hildur is the pillar of wisdom and sets an example of a high moral standard for all students
hildur is a valkyrie heroine and all the valkyrie special rules apply as described in the norse bestiary
hildur is killed the other will hate all enemy he will encounter and will get +1/
hildur is involved in
hildur is also part of the staff
hildur is twin to agnes nelson
hildur is now at hand
hildur is een van de eerste homeopatische artsen van ijsland en woonde nog niet zo lang geleden met haar geliefde
hildur is described as of detroit lakes
hildur is 6 years old and lives in vejle
hildur is of course able to put on some sun lotion
:: hildur skrifaði | mánudagur, febrúar 09, 2004
:: sunnudagur, febrúar 08, 2004 ::
Í þessum skrifuðu orðum lít ég bókstaflega út eins og fuglahræðan í Galdrakallinum í OZ! Skemmti mér heldur hressilega í gær í vægast sagt frábæru karókí afmæli, takk Kónga fyrir gott rokk!..já og vaknaði þunn og með topp í morgun!
Pabbi lumar alltaf á einhverju sniðugu og kom með alveg brillíant stökur áðan sem eiga að hafa verið á einhverju fylleríinu hjá veðurfræðingum.
Á stofunni unnu þau saman,
veðrið er úrkoma með hæð.
Hann er með háþrýsti svæði,
en hún er með all djúpa lægð.
Ef legði hún lægðina á borðið,
og lagaði örlítið til.
Þá gæti það ef til vill orðið,
úrkoma honum í vil!
...svo mörg eru þau orð.
:: hildur skrifaði | sunnudagur, febrúar 08, 2004
:: laugardagur, febrúar 07, 2004 ::
...þett´er ekki huggulegt! Á stundu sem þessari legg ég blessun mína yfir framkvæmdaleysi borgarinnar, þær seinustu fjórar jólaseríur sem uppi hanga og poppa algjörlega upp miðbæinn! Febrúar genginn í garð og ekki seinna vænna en að skipurleggja sumarið. Köben it is! Staðráðin í að ná upp lágmarks líkamshita fyrir sumarlok, marenera skrokkinn í Tuborg og léttsteikja á ströndinni...ef þið vitið um eitthvað herbergi frá og með 1.maí smellið því á mig!
:: hildur skrifaði | laugardagur, febrúar 07, 2004
:: fimmtudagur, febrúar 05, 2004 ::
Guð hvað ég er fegin að búið sé að uppfæra sauðskinnsskó í nútímalegri horfur. Ég skil ekki hvernig þessir gaddhörðu víkingar gátu trítlað um allt á tátiljunum einum saman!!! Það er ekki lengra síðan en í gær að um mig fór sterkur vorfiðringur með öllum sínum æpandi hugmyndum um göngur, ferðalög, bústað, grill, gítar og útigamani. Svo laumast svona snjóhrúga inn um bakdyrnar, ekkert gaman! Ekkert í boði en að dúsa heima, éta,vinna og sofa! Snjórinn má fara með jóladótinu, inn með sumarið!
:: hildur skrifaði | fimmtudagur, febrúar 05, 2004